Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð

Sjá síðustu spjallþræði Sjá næstu spjallþræði Go down

Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  alive on Þri Okt 20, 2009 10:31 pm

Úff hvað minn yndislegasti strákur er byrjaður að meiða mömmu sína mikið þessa dagana !
Hann er allann daginn ofur virkur að brasa þvílíkt stóra hluti í bumbunni, sem er oft virkilega sársaukafullt og óþæginlegt!!
Ég er komin með þvílíkan kvíða fyrir því að verða "tóm" þegar ég er búin að eiga en samt er ég orðin rosa þreytt á endalausu rifbeinahnoði og stórri bumbu!
Mamma nefndi það í dag hvað henni hafi fundist skrítið að fara í sturtu þegar hún var búin að fæða mig, og ég fékk alveg sjokk þegar hún sagði þetta! Man liggur við ekki eftir mér öðruvísi en með lítinn hnoðara í maganum og finnst það svo óþæginleg tilhugsun að einn daginn fari hann bara þaðan og ég verði ein og tóm! Einhverjar fleiri sem finna þetta eða er ég bara svona stórskrítin? afro

alive

Fjöldi innleggja: 3
Join date: 18/10/2009
Age: 21
Staðsetning: Akureyri

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  chica on Þri Okt 20, 2009 10:59 pm

Man þegar ég var búin að eiga seinast að mér fannst þetta voða þægilegt (þá að geta hreyft mig almenilega aftur) og tók voða litið eftir þessu því litla stelpan mín tók alla athygli frá þessu. Það var ekki fyrr en mörgum mánuðum seina að ein vinkona mín var ólett og ég fann hreyfingar hjá henni að ég hugsaði: ég sakna að finna fyrir hreyfingum inn í minni bumbu.
Svo ekki hugsa mikið um þetta, litla krílið þitt á eftir að dreyfa huga þínum nóg vona ég sunny

chica

Fjöldi innleggja: 2
Join date: 18/10/2009

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Bryndís on Þri Okt 20, 2009 11:24 pm

já úff ég er orðin svo svakalega aum í rifbeinunum hægra megin að í hvert sinn sem kemur spark þá kippist ég svoleiðis við....hlakkar soldið til að geta hreyft mig almennilega og að geta sest og staðið upp án þess að það sé vesen...en það verður örugglega voðalega skrítið samt að vera ekki með kúluna sína áfram Razz

Bryndís

Fjöldi innleggja: 3
Join date: 18/10/2009
Age: 19
Staðsetning: Kópavogur

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Helga on Mið Okt 21, 2009 12:00 am

Verð að viðurkenna að ég hafði bara aldrei pælt í því að það gæti fylgt því einhver tómleikatilfinning þegar maður verður búinn að eiga... En eins og stelpurnar sögðu þá held ég nú að barnið taki alla manns athygli og svo verður líka ansi gott að geta hreyft sig eins og eðlileg manneskja aftur Very Happy
Annars hef ég verið það heppin að þrátt fyrir að litla krílið mitt sé í óskorðað í höfuðstöðu þá lætur það það að mestu vera að sparka í rifbeinin mín. Hins vegar er hikstinn sem mér fannst skemmtilegur til að byrja með farinn að fara verulega í taugarnar á mér - það er heldur engu lagi líkt hvað þetta barn hikstar mikið... tongue

Helga

Fjöldi innleggja: 2
Join date: 18/10/2009
Age: 26

Sjá uppsetningu notanda http://barnaland.is/barn/70245/

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Fanney on Mið Okt 21, 2009 9:08 am

Já hef heldur svosem ekki pælt í þessu. Verður örugglega skrítið, en hugsa líka að litla krílið taki mesta athyglina til að byrja með amk Smile

Fanney

Fjöldi innleggja: 2
Join date: 18/10/2009

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Ásgerður on Mið Okt 21, 2009 8:39 pm

Úff ég á sko ekki eftir að sakna bumbunnar. Var fegin síðast að vera laus og geta knúsað barnið og er viss um að ég verði það núna líka haha

Ásgerður

Fjöldi innleggja: 8
Join date: 18/10/2009
Age: 31
Staðsetning: Hafnarfjörður

Sjá uppsetningu notanda http://wwww.barnanet.is/5323

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  alive on Mið Okt 21, 2009 10:54 pm

Já ég hlakka reyndar þvílíkt til að geta legið á maganum og staðið sjálf uppúr rúmminu og sófanum og vera ekki að burðast með þessa vömb allan daginn útum allt hehe, en samt er ég geggjað kvíðin eitthvað að vera ekki með neitt þarna!! Þvílíkt blendnar tilfinningar hehe
Verð bara að vona að það sé rétt hjá ykkur, einsog ég held, að strákurinn á eftir að taka athyglina algerlega af þessu, kvíði þá bara mest fyrir sturtunni og svona, þar sem hann verður ekki hehe...
En vá hvað ég er sammála þér Helga með hikstann, fannst þetta krúttlegast í heimi fyrst og gerði mig voða happy að finna hann hiksta en núna gerir hann ekkert annað en að hiksta og það er gersamlega að gera mig geðveika!! Haha
Þetta er einsog pirrandi fjörfiskur og ég hlakka mjög til að losna við þá tilfinningu!!

alive

Fjöldi innleggja: 3
Join date: 18/10/2009
Age: 21
Staðsetning: Akureyri

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Gyða on Fim Okt 22, 2009 10:13 am

Ég er búin að hugsa oft um þetta, það að ég eigi eftir að sakna bumbunnar. Ég held að ég eigi eftir að sakna hennar að miklu leiti en að öðru leiti verð ég fegin að losna við hana hehe Very Happy Held samt að maður verði svo upptekin af barninu þegar það kemur í heiminn að maður gleymi því nánast alveg. Mér finnst samt svo yndislegt að hafa bumbuna mína Very Happy

Gyða

Fjöldi innleggja: 5
Join date: 18/10/2009
Age: 27
Staðsetning: Århus

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Tinna on Fim Okt 22, 2009 10:39 am

Helga skrifaði:Verð að viðurkenna að ég hafði bara aldrei pælt í því að það gæti fylgt því einhver tómleikatilfinning þegar maður verður búinn að eiga... En eins og stelpurnar sögðu þá held ég nú að barnið taki alla manns athygli og svo verður líka ansi gott að geta hreyft sig eins og eðlileg manneskja aftur Very Happy
Annars hef ég verið það heppin að þrátt fyrir að litla krílið mitt sé í óskorðað í höfuðstöðu þá lætur það það að mestu vera að sparka í rifbeinin mín. Hins vegar er hikstinn sem mér fannst skemmtilegur til að byrja með farinn að fara verulega í taugarnar á mér - það er heldur engu lagi líkt hvað þetta barn hikstar mikið... tongue


Ohh já, ég er alveg sammála þér... Þessi endalasui hiksti og brölt er farið að fara öööörlítið í taugarnar á mér.. Held það tengist líka pirringi vegna svefnleysis, því auðvitað myndi maður ekki heldur vilja finna ekki neitt. Annars hlakka ég líka rosalega til þess að losna við bumbuna og fá stelpuna mína í hendurnar en svo getur vel verið að maður fyllist smá söknuði þegar þar að kemur. En núna langar mig allavega bara að losna við þetta og geta farið að hreyfa mig almennilega! Smile

Tinna

Fjöldi innleggja: 2
Join date: 18/10/2009

Sjá uppsetningu notanda

Til baka efst á síðu Go down

Re: Of miklar hreyfingar og furðulegar tilfinningar!

Innlegg  Ellen on Fim Okt 22, 2009 10:56 pm

Ég á sko ekki eftir að sakna bumbunnar, get ekki beðið eftir að knúsa krílið mitt utan frá Smile

Man eftir því síðast að ég var eins og hringjarinn frá notredame af því að jafnvægispunkturinn hjá manni er svo vitlaus þegar barnið er ekki þarna lengur en er reyndar mjög fljótt að lagast. Ég var bara svo rosalega hress eftir fæðinguna að ég fór mjög fljótt á fætur til að fara í sturtu.

Get ekki beðið eftir að geta legið á maganum og bakinu, að geta tekið til hérna án þess að láta elstu stelpuna eða karlinn rétta mér hlutina sem eru á gólfinu og bara já geta gert þessa eðlilegu hluti aftur.

Ellen

Fjöldi innleggja: 3
Join date: 18/10/2009
Age: 31
Staðsetning: Reykjavík

Sjá uppsetningu notanda http://emblaoguna.barnaland.is

Til baka efst á síðu Go down

Sjá síðustu spjallþræði Sjá næstu spjallþræði Til baka efst á síðu


Permissions of this forum:
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum